Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 28. mars 2023 10:56
Elvar Geir Magnússon
Kröfu KV um að fella úr gildi ákvörðun stjórnar KSÍ hafnað
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur hafnað kröfu KV um að felld verði úr gildi ákvörðun stjórnar KSÍ frá 18. febrúar um að Ægir Þorlákshöfn taki sæti Kórdrengja í Lengjudeildinni.

Þá hafnaði nefndin kröfu KV um að staðfest verði að félagið skuli leika í Lengjudeildinni komandi tímabil.

Kröfu KV um að staðfest yrði að félagið Kórdrengir hafi ekki uppfyllt skilyrði leyfiskerfis Knattspyrnusambands Íslands var vísað frá aga- og úrskurðarnefnd.

Þetta er önnur kæran varðandi málið sem KV tapar en í úrskurðinum segir að KSÍ hafi réttilega flutt Ægi upp í Lengjudeildina. KV hefur þriggja daga frest til að áfrýja málinu til áfrýjunardómstóls KSÍ.

Úr niðurstöðu í máli nr. 5/2023:
„Í gr. 13 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót er fjallað um þátttökurétt í mótum á vegum KSÍ. Í gr. 13.4 er fjallað um þátttökutilkynningar og kemur þar m.a. fram að þátttökutilkynningar verða ekki teknar til greina nema nauðsynlegar upplýsingar fylgi skv. reglugerðum KSÍ og fyrirmælum mótanefndar, sem og helmingur þátttökugjalda, helmingur heildargjalds vegna ferða- og uppihaldskostnaðar dómara- og aðstoðardómara vegna leikja í deildakeppni og bikarkeppnum og ógreiddar skuldir fyrra árs.

Í gr. 18.1 í sömu reglugerð er kveðið á um að leikir í knattspyrnumótum á vegum KSÍ skuli fara fram á leikvöllum er uppfylla kröfur sem settar eru fram í reglugerð KSÍ um knattspyrnuleikvanga. Þá kemur fram í gr. 18.2 að félög skuli tilkynna KSÍ um stærð og gerð leikvallar sem viðkomandi félag hyggst leika á fyrir 10. janúar ár hvert. Þá kemur fram að ef leikvöllur félags uppfylli ekki kröfur um lágmarksstærð skuli umsókn þess um þátttöku í mótum á vegum KSÍ hafnað.“

[…] „Af framangreindu má ljóst vera að þátttökutilkynning Kórdrengja frá 7. febrúar 2023 uppfyllti ekki þann áskilnað sem gerður er í gr. 13.4, sbr. og gr. 18.2 í reglugerðar KSÍ um knattspyrnumót og í samræmi við skýran áskilnað gr. 13.4 bar kærða, KSÍ, að bregðast við með þeim hætti að taka ekki þátttökutilkynningu til greina.

[…] „Að framangreindu virtu bar stjórn KSÍ, við endurröðun liða vegna brottfalls Kórdrengja, að miða við hina almennu reglu í gr. 23.1.11 og var Ægir því réttilega fluttur upp um deild í Lengjudeild karla.

Með vísan til alls framangreinds er hafnað þeirri kröfu kæranda að fella úr gildi þá ákvörðun stjórnar KSÍ frá 18. febrúar 2023 að hafna að taka til greina þátttökutilkynningu Kórdrengja vegna keppnistímabilsins 2023 og þess í stað að flytja Knattspyrnufélagið Ægi í Lengjudeild karla í stað Kórdrengja. Með því að fyrsta kröfulið kæranda er hafnað verður jafnframt hafnað þriðja kröfulið kæranda um að staðfest verði að Knattspyrnufélag Vesturbæjar skuli leika í Lengjudeild karla sumarið 2023.“


Úrskurðurinn í heild sinni
Athugasemdir
banner
banner