Fotbolti.net
28.06.26 - 20:55
Gylfi Már Þórðarson

Arnór Ingvi - Það gefur ekki mikið þegar þú tapar

Auglýsing
Arnór Ingvi Traustason - leikmaður KR

Arnór Ingvi Traustason - leikmaður KR

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi Traustason átti góðan leik með KR þegar þeir lutu í lægra haldi gegn Keflavík á HS Orku vellinum í Keflavík í dag. Arnór skoraði fyrsta mark leiksins, sem hann gerði einmitt sömuleiðis í fyrri viðureign liðanna í fyrstu umferð mótsins, var sífellt ógnandi og átti fjöldan allan af góðum marktilraunum sem Ásgeir Orri í marki Keflavíkur mátti hafa sig allan við til að verja.
Lestu um leikinn: Keflavík 3 - 2 KR
Aðspurður hvort honum þætti gott að spila gegn Keflavík hafði Arnór þetta að segja:

"Jájá, eða ég veit það ekki. Ég hef bara spilað tvisvar gegn Keflavík og skorað í bæði skiptin en það hjálpaði ekki meira en það. Það gefur ekki mikið þegar þú tapar. Við áttum ekkert skilið í dag, við vorum hræðilegir. Það klikkaði mjög margt í dag, ákefð og margir hlutir. Það er best að ég segi sem minnst. Það er ekkert sem við getum tekið með okkur úr þessum leik.

Hvað þurfið þið að bæta fyrir næsta leik?

"Við þurfum að bera virðingu fyrir öllum verkefnum sem við förum í. Við þurfum að gera þetta almennilega, við getum ekki farið inn í leiki og þykjast vera eitthvað skilurðu. Við verðum bara að setjast niður og fara yfir þennan leik" sagði Arnór Ingvi Traustason.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.