Fotbolti.net
28.06.26 - 22:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Auka hálftími af þessu hefði verið aðeins of mikið"

„Auka hálftími af þessu hefði verið aðeins of mikið"
Canon

Mynd: EPA

Kanada er komið áfram í 16-liða úrslit á HM eftir dramatískan sigur á Suður-Afríku í dag. Stephen Eustaquio skoraði sigurmarkið í uppbótatíma.

Leikurinn var til umræðu í HM-kvöldi á RÚV en Arnar Gunnlaugsson, Eiður Smári Guðjohnsen og Hörður Magnússon hafa ekki trú á því að Kanada fari lengra.
„Það var erfitt að horfa á þetta. Þetta voru smá vörusvik. Ég horfði mikið á Kanada í aðdraganda leiks á móti okkur og svo hvernig Jesse Marsch er búinn að tala undanfarin ár. Hann skuldar okkur ekki neitt en þeir fóru aldrei í pressu. Það leið langt á milli atvika hjá þeim. Þeir náðu skotum og dauðafærum, hvað gerðu þeir svo? Þeir leyfðu Suður-Afríku að komast inn í leikinn. Þetta voru hálfgerð vörusvik," sagi Arnar.

„Þeir komust áfram og hann getur sagt að leikplanið hafi gengið fullkomlega upp en þeir munu fara út í næstu umferð."

„Ég hefði fagnað alveg sama hvort Kanada eða Suður-Afríka hefði skorað í þessum leik. Auka hálftími af þessu hefði verið aðeins of mikið. Það er nokkuð ljóst miðað við gæðin í þessum leik að annað hvort liðið sem fer áfram dettur hundrað prósent út í næstu umferð. Kanada með sitt lið og það sem Jesse Marsch er búinn að skrökva að okkur miðað við þennan leik eiga smá meiri möguleika á móti sterkari andstæðingum," sagði Eiður Smári.

„Þessi leikur var eins og að horfa á listræna kvikmynd í tvo tíma svo færðu eitthvað smá í lokin en ekkert mikið meira," sagði Höddi Magg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.