Fotbolti.net
28.06.26 - 21:09
Gylfi Már Þórðarson

Davíð Helgi - Ég reyni alltaf að toppa mig

Auglýsing
Davíð Helgi Aronsson - leikmaður Keflavíkur

Davíð Helgi Aronsson - leikmaður Keflavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Helgi Aronsson, varnarmaður Keflavíkur, átti stórgóðan leik í vörn Keflavíkur í dag þegar liðið sigraði KR 3-2 á HS Orku vellinum í Keflavík í dag. Davíð stóð vaktina í vörn Keflavíkur, steig hann varla feilspor allan leikinn og lék líkt og hann hafi spilað í Bestu deildinni í áraraðir en Davíð er einungis 19 ára gamall.
Lestu um leikinn: Keflavík 3 - 2 KR
"Ég myndi segja að þetta sé ein af bestu frammistöðum okkar í sumar. Við vorum að vinna saman sem lið og færðum liðið saman í vörn og við vorum þéttir. Það er einmitt það sem við þurfum að gera á móti þessum bestu liðum í deildinni. Mér fannst liðsframmistaðan frábær í dag. "

Myndirðu segja að þetta sé þín besta frammistaða í sumar

"Ég reyni alltaf að toppa mig, ég var mjög sáttur við mina frammistöðu og liðið sömuleiðis."

"Við þurfum að halda áfram og fara áfram inn í alla leiki eins og þeir séu úrslitaleikir. Við megum ekki vanmeta neitt lið, það geta öll lið unnið okkur, við höfum séð það." sagði Davíð Helgi Aronsson eftir leik í Keflavík í dag

Allt viðtalið við Davíð Helga má finna í spilaranum hérna að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.