Haraldur Freyr: Menn voru tilbúnir að hlaupa úr sér lungun
Auglýsing

Haraldur Freyr Guðmundsson - þjálfari Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflvíkingar sigruðu KR í fyrsta sinn síðan 2008 á HS Orku vellinum í Keflavík í dag. Leikar enduðu 3-2 og kom sigurmarkið á 90. mínútu þegar Alpha Conteh skoraði stórglæsilegt mark. Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur kom í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Keflavík 3 - 2 KR
"Heilt yfir var frammistaðan mjög góð hjá liðinu. Menn voru tilbúnir að hlaupa úr sér lungun og kasta sér fyrir allt hér í dag. Frammistaðan er mjög góð gegn feyknasterku KR-liði sem hefur verið á góðu skriði. Frábær sigur. "
"Mér fannst liðheildin mjög góð og menn sem koma inná komu mjög vel inn í leikinn með ferskar lappir og breyttu þessu aðeins fyrir okkur sem gerir það að verkum að við vinnum leikinn."
"Eftir að staðan er orðin 2-2, þá er leikurinn svolítið fram og tilbaka eftir að hafa verið frekar rólegur. Jafntefli hefði ekkert verið ósanngjarnt en við fáum mark úr efstu hillu í lokin sem vinnur þennan leik."
Eiður Orri Ragnarsson leikmaður Keflavíkur hefur verið seldur til Víkings.
"Eiður hefur staðið sig frábærlega fyrir klúbbinn, kemur inná og er flottur í dag. Hann er flottur spilari sem er að taka næsta skref á sínum ferli og óskum við honum góðs gengis."
Það hafa verið sögur um að erlendur leikmaður sé að æfa með Keflavík
"Það er ungur Portúgali, hafsent, sem hefur verið að æfa með okkur. Það er eitthvað sem við erum að hugsa um fyrir framtíðina. Ég veit ekki að svo stöddu hvort við semjum við hann.
Eru fleiri leikmenn á radarnum?
Við erum alltaf með augun opin en það er ekkert í hendi" sagði Haraldur Freyr
Allt viðtalið við Harald Frey er í spilaranum hér að ofan