Siggi Höskulds: Ég held að þetta sé mark og rautt
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór tapaði gegn Val í Bestu deildinni í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Sigurð Heiðar Höskuldsson, þjálfara Þórs, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 4 Valur
„Mikið svekkelsi. Búnir að koma til baka og jafna og sína karakter. Mér fannst við jafnvel vera ofan á á þeim tímapunkti og vera liðið var að sækja þetta. Svo var þetta ævintýralega klaufalegt mark sem við fáum á okkur upp úr innkasti sem er óboðlegt. Búnir að fá á okkur tvö mörk í fyrri hálfleik eftir seinni bolta og fast leikatriði og fá svo þetta í grímuna í lokin. Þetta er mjög vont," sagði Siggi.
Þór var tveimur mörkum undir í hálfleik en voru sterkir í seinni hálfleik eftir tvöfalda skiptingu. Siggi telur að hann hafi valið rétt byrjunarlið.
„Nei. Ég horfi aldrei á það þannig. Okkur fannst við vera velja rétta byrjunarliðið. Hins vegar þorðum við ekkert að vera með boltann og gerðum alltof mörg mistök á boltanum. Enginn vilji að fá boltann og spila honum sem er mjög skrítið þegar þú ert að spila fótbolta," sagði Siggi.
Ingimar Arnar Kristjánsson kom inn á sem varamaður í hálfleik og minnkaði muninn. Bjarni Mark Antonsson fékk að líta gula spjaldið fyrir að brjóta á Ingimari þegar hann skoraði.
„Ég held að þetta sé mark og rautt. Hann fer tveggja fóta aftan í hann, mér finnst hann ekki reyna við boltann," sagði Siggi.
Ingimar þurfti að fara af velli og varnarmaðurinn stóri og stæðilegi Ragnar Óli Ragnarsson kom inn á í hans stað en sóknarmaðurinn ungi Peter Ingi Helgason Jones var áfram á bekknum.
„Peter er búinn að vera meiddur, fór úr axlarlið, var aldrei að fara geta spilað svona mikið, sérstaklega með Hólmar (Örn Eyjólfsson) í rassgatinu. Hann var hugsaður meira til að koma inn á í blálokin. Raggi gerði vel og var 'handful' fyrir Hólmar. Hann er stór og sterkur og hjálpaði okkur upp á topp."