Fotbolti.net
28.10.13 - 09:40
Elvar Geir Magnússon

Úrvalslið vikunnar í enska - Liverpool-borg áberandi

Steven Gerrard er á miðjunni.

Steven Gerrard er á miðjunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

Heil umferð var leikin í ensku úrvalsdeildinni um helgina og hér má sjá úrvalslið helgarinnar. Að þessu sinni var það sótt af síðunni ftbpro.com þar sem Osman Hassan setti saman lið úr þeim leikmönnum sem sköruðu fram úr um helgina.


Markvörður: Tim Howard
David Marshall átti frábæra frammistöðu fyrir Cardiff og Wojciech Szczesny fyrir Arsenal. Howard fær þó sætið fyrir að hafa varið víti í sigri Everton gegn Aston Villa.

Varnarmaður: Bacary Sagna
Frábær frammistaða hjá Sagna, bæði varnarlega og sóknarlega.

Varnarmaður: Phil Jagielka
Glæsileg frammistað hjá Jagielka en hann og Sylvain Distin eru að ná frábærlega saman.

Varnarmaður: Martin Skrtel
Er að spila frábærlega um þessar mundir.

Varnarmaður: Leighton Baines
Líklega besti varnarmaður Englands.

Miðjumaður: Steven Gerrard
Enn önnur frábær frammistaða fyrirliða Liverpool. Það má segja að hann hafi sýnt að hann sé háklassa leikmaður.

Miðjumaður: Ramires
Stórleikur gegn Manchester City. Frábærar sendingar, góð frammistaða varnarlega og átti þátt í uppbyggingu sigurmarks Chelsea.

Miðjumaður: Jay Rodriguez
Skoraði frábært mark og átti stoðsendingu. Southampton heldur áfram að fara á kostum.

Sóknarmaður: Wayne Rooney
Hvar væri Manchester United án Rooney? Hjálpaði United að vinna ótrúlega mikilvægan sigur gegn Stoke.

Sóknarmaður: Fernando Torres
Frammistaðan var ekki fullkomin en það mátti sjá glitta í gamla góða Torres. Lagði upp mark fyrir Andre Schurrle og skoraði svo sigurmarkið sjálfur.

Sóknarmaður: Luis Suarez
Sama hvort hann sé á vinsældalistanum þínum eða ekki er hægt að neita því að þegar kemur að fótboltahæfileikum er Suarez snillingur. Sex mörk í fjórum leikjum.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Torres sá um að klára Manchester City.

Torres sá um að klára Manchester City.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.