Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. október 2022 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Veit ekki hvort þetta sé raunverulegt eða að mig sé að dreyma"
Alejandro Garnacho í leiknum í gærkvöldi
Alejandro Garnacho í leiknum í gærkvöldi
Mynd: EPA
Hinn 18 ára gamli Alejandro Garnacho lék sinn fyrsta leik í byrjunarliði Manchester United er liðið tók á móti Sheriff í Evrópudeildinni í gær.

Hann upplifði svo sannarlega drauminn en hann birti mynd af sér og Cristiano Ronaldo á Twitter eftir leikinn í gær og skrifaði; „Ég veit ekki hvort þetta sé raunverulegt eða að mig sé að dreyma."

Garnacho á ekki langan feril að baki en hann hefur sparkað í bolta í návist tveggja af bestu leikmönnum sögunnar á þessu ári.

Garnacho er argentískur en hann var valinn í æfingahóp landsliðsins fyrr á þessu ári en í honum var einnig Lionel Messi.

Garnacho hefur leikið sex leiki með aðalliði Manchester United. Þá á hann fimm landsleiki með u20 ára liði Argentínu og skorað fjögur mörk. Hann er fæddur á Spáni og lék með spænska u18 ára landsliðinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner