Kristó: Nú verð ég ljótur og leiðinlegur
Auglýsing

Kristófer Sigurgeirsson, þjálfari Leiknis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Maður er auðvitað hundfúll en ef maður horfir á leikinn í heild sinni erum við kannski bara heppnir að fara héðan með stig.\" sagði Kristófer Sigurgeirsson, þjálfari Leiknis en hann var að vonum ekki sáttur með 1-1 jafntefli gegn ÍR í kvöld en lið hans fékk á sig jöfnunarmark undir lokin.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem liðið missir forystu niður í jafntefli og liðið er með flest jafntefli í deildinni.
„Það er pirrandi, auðvitað, að ná ekki að halda þegar þú ert kominn yfir og ég tel okkur vera með gæðin en við erum ekki að sýna það, því miður. Þess vegna fer sem fer.
Þá var Kristó spurður um frammistöðu liðsins í dag en Leiknir voru ágætir í fyrri hálfleik en í þeim seinni lagst liðið langt niður á völlinn og spiluðu ekki vel fram á við.
Nú verð ég ljótur og leiðinlegur. Þetta er bara eina versta frammistaða sem ég hef séð hjá mínu liði, sérstaklega í seinni hálfleik. Við náum ekki að binda saman þrjár, fjórar sendingar allan hálfleikinn og þess vegna er maður kannski extra frústreraður núna því við eigum ekki að vera svona og erum að spila langt undir getu.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.