Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 29. júlí 2022 20:22
Ívan Guðjón Baldursson
Guðjón Ernir framlengir við ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Ernir Hrafnkelsson er búinn að framlengja samning sinn við ÍBV út tímabilið 2024.


Guðjón Ernir, fæddur 2001, er á sínu þriðja ári í Vestmannaeyjum þar sem hann hefur verið í lykilhlutverki frá komunni til félagsins eftir að hafa alist upp hjá Hetti.

Guðjón Ernir á 54 deildarleiki að baki fyrir ÍBV og hefur einu sinni verið valinn í lið umferðarinnar í Bestu deildinni í sumar.

„Það er mikil ánægja hjá knattspyrnuráði með áframhaldandi samstarf við Guðjóni Erni. Áfram ÍBV, alltaf, alls staðar - og gleðilega Þjóðhátíð!" segir í yfirlýsingu á ÍBV.


Athugasemdir
banner
banner