Ekki slæmt fyrir lélegasta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar

Hull City er með tvö sigra og hafa haldið hreinu í báðum leikjunum

Mynd: EPA

Hull City er með tvö sigra og hafa haldið hreinu í báðum leikjunum

Mynd: EPA
Hull City hafa farið virkilega vel af stað í Ensku úrvalsdeildinni og hafa unnið báða leikina og haldið hreinu í þeim báðum, gegn Coventry og Manchester United.
„Fólk að segja við séum versta lið í sögu úrvalsdeildarinnar, þá er þetta ekki slæm byrjun hjá okkur strákunum" sagði Ollie McBurnie léttur og skaut á fólk sem hefur verið að gagnrýna Hull City fyrir tímabilið.
Sigurmark á síðustu 10 mínútum leiksins frá Liam Millar gegn Coventry tryggði Hull sigur og sitja þeir í 2.sæti deildarinnar og eru í draumastöðu í þeirra endurkomu í úrvalsdeildina.
Eftir sigur gegn Manchester United í fyrstu umferð var frammistaðan á laugardaginn gegn Coventry öðruvísi og baráttumeiri og gegn liði sem er talið vera fara berjast við Hull um að halda sæti sínu í deildinni og gefur það Hull mikið sjálfstraust og meðbyr.
„Okkur finnst við ekki þurfa sanna neitt fyrir neinum, það gaf okkur enginn sæti í úrvaldsdeildinni, við höfum allir unnið fyrir því."
„Við erum hér af því við eigum það skilið. Þetta hefur verið frábær byrjun" sagði Ollie McBurnie.
Stemningin í stúkunni var mjög góð og fólkið var meira að segja að syngja „við erum að fara vinna deildina" úr gestastúkunni.
Aðeins þrjú lið hafa fallið úr úrvalsdeildinni eftir að hafa unnið fyrstu 2 leikina og því lítur þessi byrjun ansi vel út fyrir Hull.
Liðin sem féllu eftir að hafa unnið fyrstu 2 leikina voru:
Hull City tímabilið 2016-17
Wolves tímabilið 2011-12
West Brom tímabilið 2017-18
Frank Lampard mætti í viðtal eftir leik og hafði þetta að segja:
„Þetta tímabil var alltaf að fara verða mjög ólíkt síðasta tímabili, ég fann fyrir pínu skjálfta hjá mínum mönnum. Þeir voru frekar að spila öruggt og ekki mikið að taka séns á því að senda fram á við."
„Þetta var leikur gegn liði sem við kepptum við tvisvar á síðasta tímabili og við enduðum mörgum stigum fyrir ofan þá. Úrvalsdeildin er allt önnur deild og við verðum að venjast því og það fljótt."

Heimild: BBC
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 2 | +4 | 6 |
| 2 | Hull City | 2 | +3 | 6 |
| 3 | Everton | 2 | +2 | 4 |
| 4 | Newcastle | 2 | +2 | 4 |
| 5 | Brighton | 1 | +4 | 3 |
| 6 | Arsenal | 1 | +3 | 3 |
| 7 | Brentford | 1 | +3 | 3 |
| 8 | Chelsea | 1 | +1 | 3 |
| 9 | Ipswich Town | 1 | +1 | 3 |
| 10 | Leeds | 1 | +1 | 3 |
| 11 | Liverpool | 2 | 0 | 2 |
| 12 | Bournemouth | 2 | -1 | 1 |
| 13 | Nott. Forest | 2 | -1 | 1 |
| 14 | Fulham | 1 | -1 | 0 |
| 15 | Sunderland | 1 | -1 | 0 |
| 16 | Man Utd | 1 | -2 | 0 |
| 17 | Coventry | 2 | -4 | 0 |
| 18 | Aston Villa | 1 | -4 | 0 |
| 19 | Tottenham | 2 | -5 | 0 |
| 20 | Crystal Palace | 2 | -5 | 0 |
