Fotbolti.net
29.08.26 - 18:08
Guðmundur Jónasson

Besta deild kvenna: ÍBV hleyptu lífi í titilbaráttuna - Þróttur R. og Þór/KA skildu jöfn

ÍBV hleypa lífi í titilbaráttuna

ÍBV hleypa lífi í titilbaráttuna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Það fóru 2 leikir af stað í Bestu deild kvenna klukkan fjögur í dag. Þróttur R. tóku á móti Þór/KA og Breiðablik tóku á móti ÍBV.

Þróttur R. tók á móti Þór/KA í dag en Þór/KA eru í mikilli baráttu í neðri hluta deildarinnar og sigur hefði komið þeim aðeins frá þeim pakka í bili. 

Ekkert mark var skorað í þessum leik og niðurstaðan því 0-0 jafntefli og Þór/KA ennþá í mikilli botn baráttu en þær sitja í 7.sæti með 19 stig jafn mörg stig og Fram sem eru í því áttunda.

Þróttur R. 0 - 0 Þór/KA

Lestu um leikinn 

ÍBV unnu frábæran sigur á toppliðinu Breiðablik í spennandi leik. Allison Grace Lowrey kom ÍBV yfir í lok fyrri hálfleiks eftir undirbúning frá nöfnu sinn Allison Patriciu Clark og staðan í hálfleik 0-1 fyrir Eyjakonum. Breiðablik sótti og sótti í seinni hálfleik en boltinn vildi ekki inn í mark ÍBV, Fridrikka Marie Clementsen var síðan á ferðinni á 84. mínútu og kom ÍBV í 0-2 í mjög góða stöðu en Breiðablik voru ekki hættar og náðu að minnka muninn í 1-2 þegar 4 mínútur voru eftir með marki frá Elísu Viðarsdóttur en það dugði ekki til og lokatölur 1-2 fyrir ÍBV. 

Breiðablik 1 - 2 ÍBV

0-1 Allison Grace Lowrey ('45 )

0-2 Fridrikka Marie Clementsen ('84 )

1-2 Elísa Viðarsdóttir ('86 )

Lestu um leikinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.