29.08.26 - 19:00
Sverrir Örn Einarsson
England: Newcastle refsaði Tottenham

Wissa var á skotskónum

Mynd: EPA

Wissa var á skotskónum

Mynd: EPA
Newcastle United vann verðskuldaðan 2-0 útisigur gegn Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðin mættust í London á Tottenham Stadium.
Tottenham 0 - 2 Newcastle
0-1 Anthony Elanga ('62 )
0-2 Yoane Wissa ('72 )
Tottenham 0 - 2 Newcastle
0-1 Anthony Elanga ('62 )
0-2 Yoane Wissa ('72 )
Heimamenn í Tottenham mættu ákveðnir til leiks og tóku stjórnina á leiknum strax í upphafi og voru framan af líklegra liðið. Varnarleikur Newcastle var þó þéttur og gekk heimamönnum erfiðlega að finna glufur og skapa sér afgerandi færi og staðan markalaus í hálfleik.
Síðari hálfleikur hófst á svipuðum nótum og sá fyrri spilaðist en þegar líða fór færðist aukinn kraftur í skyndisóknir gestanna sem ógnuðu marki Tottenham nokkuð.
Á 61.mínútu leiksins vann Newcastle boltann á eigin vallarhelmingi og brunaði fram í hraða skyndisókn. Boltinn barst til sænska kantmannsins Anthony Elanga sem keyrði inn á teiginn og átti hnitmiðað skot sem fór í stöngina og inn
Tíu mínútum síðar tvöfaldaði Newcastle forskot sitt með marki eftir fast leikatriði. Nick Woltemade skallaði þá boltann áfram eftir hornspyrnu á Yoane Wissa sem sýndi frábær tilþrif, sneri á varnarmann og skaut boltanum í netið af stuttu færi.
Eftir markið fjaraði nokkuð undan liði Tottenham sem þrátt fyrir að hafa verið meira með boltann í leiknum bauð upp á fátt sóknarlega í leiknum og sigurinn nokkuð verðskuldaður hjá gestunum.