Fotbolti.net
29.08.26 - 19:50
Sverrir Örn Einarsson

Alex Freyr: Alltaf bestir upp við vegg

Auglýsing
Alex Freyr Hilmarsson

Alex Freyr Hilmarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alex Freyr Hilmarsson fyrirliði ÍBV var að vonum vonsvikinn eftir 1-0 tap ÍBV gegn Þór á heimavelli fyrr í kvöld. Alex var til viðtals við Fótbolta.net eftir leik og hafði að segja um tilfinningar sínar í leikslok.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 1 Þór
„Súr, súr og svekktur það eru orðin til þess að nota í dag. “

Mörk breyta leikjum en vel má segja að mikilvægu atriðin féllu mörg hver Þórs megin. Vítaspyrna fer forgörðum, skot í stöng og skalli í slá og svo mætti áfram telja. Hvað vantar upp á?

„Að skora, það er það sem vantar. Þeir fá fyrirgjöfina sem þeir skora úr sem ég veit ekki hvort hafi verið sjálfsmark eða ekki en ég man ekki að þeir hafi fengið meira. Við fáum færi til að klára þetta og stöður en við þurfum bara að breyta þessu í mörk.“

Alex var þó ekki á því að ÍBV hafi endilega átt eitthvað meira skilið út úr leiknum sem fréttaritari á vellinum hafði að orði að hefði verið 50-50 leikur

„Nei ég er ekki að segja það, þeir skora og við gerum það ekki. Það er það sem skiptir máli í þessu. En 50-50? Að hvaða leyti spyr ég? Mér fannst það ekki.“

Framundan hjá ÍBV er lokaumferðin og hörð úrslitakeppni þar sem sæti í deildinni er í húfi. Það er því nægur tími ennþá til þess að bíta frá sér.

„Já, erum við ekki alltaf bestir upp við vegg? Ég held það, það er mín tilfinning og hefur verið svoleiðis síðustu ár þannig að ég fer fullur orku og bjartsýni inn í það. “

Sagði Alex en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.