Fotbolti.net
29.08.26 - 19:19
Guðmundur Jónasson

Elfar Árni og Arnar Pálmi: Vera eins og minkur til að komast í boltann

Auglýsing
Laumast eins og minkur

Laumast eins og minkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin

Völsungur unnu virkilega sterkan sigur á ÍR á Húsavík í dag.

Lestu um leikinn: Völsungur 3 - 1 ÍR

Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Arnar Pálma og Elfar Árna.

Elfar Árni var spurður um hvað honum fannst búa til þennan sigur í dag ?

„Ætli það hafi ekki bara verið þrautseigja því þetta var ekki endilega okkar besti leikur, fengum mark á okkur þarna strax í byrjun en svo náum við inn jöfnunarmarki og náum svo bara troða tveimur mörkum inn í lokinn."

Arnar Pálmi þú sem fyrirliði þið lendið undir en náið að snúa þessu við í sigur, var það eitthvað sem að fyrirliðinn barði brjóstið í sína menn sem skóp þennan sigur ?

„Nei, það þarf ekki að segja mikið við þetta lið. Það er mikill karakter í þessu liði og við höldum alltaf áfram sama hvað."

Elfar Árni þetta var skrautlegt annað mark Völsungs geturðu lýst þessu aðeins fyrir okkur? 

„Eins og latir framherjar gera oft þá bíða þeir fyrir aftan markmanninn þegar hann er að fara sparka fram í von um að hann muni kasta boltanum niður sem hann gerði þá þarf maður bara vera eins og minkur og komast í boltann og ég lagði hann svo fyrir Parla sem setti boltann í autt markið"

Enn einn sigurleikurinn en hlutirnir virðast ekki vera falla með ykkur, geriði ykkur von um að halda sætinu í deildinni?

„Við verðum bara halda áfram að gera okkar og safna stigum, við allavega björgum okkur ekki ef við vinnum ekki þannig við verðum að vinna síðasta leikinn til að eiga einhverja möguleika"

Völsungur 3 - 1 ÍR

0-1 Guðjón Máni Magnússon ('6 )

1-1 Elvar Baldvinsson ('12 )

2-1 Sergio Parla Garcia ('74 )

3-1 Gestur Aron Sörensson ('93 )

Lestu um leikinn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.