29.08.26 - 18:45
Sverrir Örn Einarsson
Albert fékk gult í slæmu tapi gegn nýliðunum

Albert beið lægri hlut í dag

Mynd: EPA

Albert beið lægri hlut í dag

Mynd: EPA
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Fiorentina sem tók á móti nýliðum Frosinone í Serie-A í kvöld. Albert hafði sig lítið frammi í leiknum en fékk að líta gula spaldið í upphafi síðari hálfleiks en hann var síðan tekinn af velli á 71.mínútu leiksins en lokatölur urðu 3-0 gestunum í Frosinone í vil.
Antonio Raimondo kom gestunum yfir á 26, mínútu leiksins með snotru marki eftir skyndisókn. Fram að markinu höfðu heimamenn ef eitthvað er verið öflugri aðilinn í leiknum en markið virtist slá þá algjörlega út af laginu.
Gabriele Bracaglia tvöfaldaði forystu gestanna með marki á 38.mínútu leiksins er hann stýrði boltanum í netið úr teignum eftir fast leikatriði.
Það var svo Antonio Raimondo sem batt endahnútinn á sigur nýliðanna með sínu öðru marki á 68. mínútu leiksins.
Erfið byrjun á tímabilinu hjá Alberti og félögum sem steinlágu fyrir Roma í fyrstu umferð deildarinnar og eru því án stiga eftir tvær umferðir.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Milan | 2 | +3 | 6 |
| 2 | Udinese | 2 | +1 | 4 |
| 3 | Roma | 1 | +4 | 3 |
| 4 | Inter | 1 | +3 | 3 |
| 5 | Lecce | 1 | +2 | 3 |
| 6 | Napoli | 1 | +2 | 3 |
| 7 | Frosinone | 2 | +2 | 3 |
| 8 | Atalanta | 1 | +1 | 3 |
| 9 | Juventus | 1 | +1 | 3 |
| 10 | Lazio | 1 | +1 | 3 |
| 11 | Cagliari | 1 | +1 | 3 |
| 12 | Sassuolo | 2 | 0 | 3 |
| 13 | Como | 1 | 0 | 1 |
| 14 | Bologna | 1 | -1 | 0 |
| 15 | Parma | 1 | -1 | 0 |
| 16 | Torino | 2 | -2 | 0 |
| 17 | Genoa | 1 | -2 | 0 |
| 18 | Monza | 2 | -4 | 0 |
| 19 | Venezia | 2 | -4 | 0 |
| 20 | Fiorentina | 2 | -7 | 0 |