29.08.26 - 22:15
Sverrir Örn Einarsson
Spánn: Orri hetja Real Sociedad

Orri var á skotskónum í kvöld

Mynd: EPA

Orri var á skotskónum í kvöld

Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson varð hetja Real Sociedad þegar liðið vann dýrmætan 2-1 sigur á Espanyol á Anoeta vellinum í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Íslenski landsliðsfyrirliðinn þakkaði sætið í byrjunarliðinu og tryggði sínum mönnum fyrstu stig tímabilsins með glæsilegu sigurmarki.
Real Sociedad 2 - 1 Espanyol
1-0 Ander Barrenetxea ('4 )
1-1 Roberto Fernandez ('45 )
2-1 Orri Oskarsson ('61 )

Heimamenn í Real Sociedad mættu gríðarlega grimmir til leiks. Liðið hafði tapað fyrstu tveimur leikjum sínum og pressan var mikil. Það tók þá aðeins fjórar mínútur að brjóta ísinn þegar Ander Barrenetxea skoraði eftir sendingu frá Mikel Oyarzabal.
Heimamenn höfðu fín tök á leiknum en tókst ekki að nýta sér jákvæða spilamennsku og var það nokkuð högg þegar Roberto Fernández jafnað fyrir gestina á 44.mínútu leiksins.
Í síðari hálfleik hélt taktísk barátta liðanna áfram, en það var á 61. mínútu sem Orri lét til skarar skríða. Mikel Oyarzabal átti þá stórkostlega sendingu inn fyrir vörn Espanyol. Orri Steinn sýndi mikla yfirvegun, tímasetti hlaup sitt vel og kláraði færið af miklu öryggi framhjá markverðinum. Hans fyrsta mark á tímabilinu í hús og stuðningsmenn heimamanna fögnuðu vel.
Orra var skipt af velli 10 mínútum síðar en heimamenn sigldu dýrmætum sigri í höfn.
Atlético Madrid vann sannfærandi 3-1 sigur á Sevilla á Ramón Sánchez Pizjuán vellinum í kvöld. Gestirnir frá Madríd gerðu út um leikinn með frábærum fyrri hálfleik þar sem Álex Baena fór á kostum.
Sevilla 1 - 3 Atletico Madrid
0-1 Alex Baena ('4 )
0-2 Ademola Lookman ('26 )
0-3 Alex Baena ('33 )
1-3 Miguel Sierra ('66 )
Atlético Madrid mætti af gífurlegum krafti og ætlaði greinilega að svara fyrir svekkjandi jafntefli í síðustu umferð. Það tók spænska landsliðsmanninn Álex Baena aðeins fjórar mínútur að koma Atlético yfir. Markið var skoðað í VAR en dæmt gilt við mikinn fögnuð gestanna.
Sókn Madringa hélt áfram og á 26. mínútu tvöfaldaði Ademola Lookman forystuna eftir laglegt spil. Sevilla-menn voru algjörlega slegnir út af laginu og aðeins sjö mínútum síðar, á þeirri 33., var Álex Baena aftur á ferðinni. Hann skoraði sitt annað mark og kom Atlético í þægilega 3-0 stöðu fyrir hálfleikinn.
Heimamenn mættu ákveðnari út til seinni hálfleiks og uppskáru á 61. mínútu þegar að Miguel Sierra náði að minnka muninn í 3-1. Lengra komust þeir þó ekki og öruggur sigur A.Madrid staðreynd.
Önnur úrslit í La Liga í dag.
Levante 5 - 2 Betis
1-0 Adrian De La Fuente ('24 )
1-1 Marc Bartra ('34 )
2-1 Enzo Bardeli ('45 )
2-2 Rodrigo Riquelme ('45 )
3-2 Brugue ('56 )
4-2 Brugue ('70 )
5-2 Jon Ander Olasagasti ('90 )
1-0 Ander Barrenetxea ('4 )
1-1 Roberto Fernandez ('45 )
2-1 Orri Oskarsson ('61 )

TENGT EFNI
Sjáðu markið: Orri Steinn kom Real Sociedad yfir