29.08.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
15 ára skorað í tveimur leikjum í röð - Bayern sýnt áhuga

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hinn 15 ára gamli Magnús Daði Ottesen hefur verið gríðarlega öflugur fyrir Fylki að undanförnu en hann hefur skorað í tveimur leikjum í röð.

TENGT EFNI
Mikill áhugi frá Bayern á Magnúsi Ottesen
Magnús, sem fagnar 16 ára afmælinu sínu í nóvember, skoraði í 6-1 sigri á Grindavík um síðustu helgi og fylgdi því eftir með því að innsigla 3-1 sigur á Gróttu í gær.
Hann fór reynslu til Bayern í fyrra og Fótbolti.net sagði frá því í maí á þessu ári að þýska stórveldið fylgdist grannt með honum.
Magnús Daði er sonur Sölva Geirs Ottesen og Söndru Karlsdóttur. Sandra lék á sínum ferli með Breiðabliki og ÍBV. Sölvi er í dag þjálfari Víkings og var á sínum ferli bæði landsliðs- og atvinnumaður erlendis.