Fotbolti.net
29.09.18 - 16:37
Kristófer Jónsson

Baldur Sig: Ætla ekki að svekkja mig á Íslandsmótinu

Auglýsing
Baldur ætlar að fagna bikartitlinum vel í kvöld

Baldur ætlar að fagna bikartitlinum vel í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Baldur Sigurðsson, fyrirliði Stjörnunnar, er sáttur með tímabilið hjá sínu liði en Stjarnan endar Íslandsmótið í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar ásamt því að vinna Mjólkurbikarinn.

<i>„Ég vil byrja á að óska Val til hamingju með titilinn. Þeir eru með frábært lið og eru vel af þessu komnir."</i> sagði Baldur eftir 1-0 tap liðsins gegn FH í dag.

Eins og fyrr segir urðu Stjörnumenn Mjólkurbikarsmeistarar fyrr í mánuðinum en þetta er fyrsti bikartitill í sögu félagsins.

<i>„Ég ætla ekki að svekkja mig neitt á Íslandsmótinu og þess í stað fagna bikartitli. Við eiginlega stimpluðum okkur út með leikjunum gegn KA og ÍBV og vonin var því ekki mikil í dag. En við verðum bara að vera jákvæðir og fagna bikartitlinum í kvöld."</i>
Stjörnumenn hafa verið duglegir að halda í sama hóp undanfarin ár og virðist sem að engin breyting verði þar á en nýlega hafa Baldur Sigurðsson, Guðjón Baldvinsson og Eyjólfur Héðinsson allir skrifað undir nýja samninga.

„Mér lýst mjög vel á framhaldið og ég sé ekki fram á miklar mannabreytingar. Þróunin hjá okkur sem topplið heldur áfram og við stefnum bara á ennþá betra tímabil á næsta ári." sagði Baldur að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.