Fotbolti.net
29.09.20 - 21:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Spánn: Getafe og Valencia í efstu tveimur sætunum

Getafe er á toppi deildarinnar.

Getafe er á toppi deildarinnar.

Canon

Mynd: Getty Images

Það fóru fram tveir leikir í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Getafe tók á móti Real Betis, sem hafði gefið Real Madrid erfiðan leik um liðna helgi. Getafe kláraði leikinn í kvöld í fyrri hálfleik með þremur mörkum.

Lokatölur voru 3-0 og er Getafe komið á topp deildarinnar með sjö stig úr þremur leikjum. Betis er með sex stig eftir að hafa spilað fjóra leiki.

Þá vann Valencia flottan útisigur gegn Real Sociedad þar sem Maxi Gomez skoraði eina markið þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma.

Valencia er í öðru sæti með sjö stig, eins og Getafe en lakari markatölu. Real Sociedad er í fimmta sæti með fimm stig.

Hér að neðan má sjá stigatöfluna í deildinni en það gæti tekið hana einhvern tíma að uppfæra sig.

Getafe 3 - 0 Betis
1-0 Angel Rodriguez ('13 )
2-0 Marc Cucurella ('39 )
3-0 Angel Rodriguez ('42 )
Rautt spjald: Aissa Mandi, Betis ('83)

Real Sociedad 0 - 1 Valencia
0-1 Maxi Gomez ('75 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Barcelona7+2421
2Atletico Madrid7+916
3Betis7+216
4Real Madrid7+1015
5Sevilla7+113
6Alaves7+511
7Deportivo7+210
8Real Sociedad7-410
9Villarreal7+18
10Athletic6+18
11Getafe7-38
12Vallecano7-58
13Osasuna7-78
14Celta7+27
15Espanyol707
16Racing Santander7-107
17Levante6-45
18Elche7-65
19Valencia7-94
20Malaga7-93
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.