Fotbolti.net
28.11.26 - 14:14
Brynjar Ingi Erluson

„Þetta er mannlegur harmleikur“

„Þetta er mannlegur harmleikur“
Canon

Mynd: EPA

Þýski sóknarmaðurinn Jamal Musiala er enn á ný kominn á meiðslalista Bayern München.
Musiala hefur gengið í gegnum mikla erfiðleika síðasta árið. Hann varð fyrir alvarlegum meiðslum á HM félagsliða og greindist síðar með störuflog, sem hefur orðið til þess að hann hefur lítið getað spilað.

Til að bæta gráu ofan á svart hafa stjórnarmenn Bayern gagnrýnt teymi Musiala opinberlega og sagt að leikmaðurinn þurfi að samþykkja launalækkun, aðeins ári eftir að hann skrifaði undir nýjan samning við félagið.

Samherjar hans hjá Bayern hafa komið honum til varnar í fjölmiðlum og stutt vel við bakið á honum á þessum erfiða tíma.

Nú hefur Musiala hins vegar orðið fyrir enn einu áfallinu. Hann er meiddur aftan í læri og verður frá keppni það sem eftir lifir árs.

Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern, segir tíðindin skelfileg.

„Þetta er mannlegur harmleikur. Við ætlum að gefa Jamal þann tíma og það svigrúm sem hann þarf til að kúpla sig alveg út og koma sterkari til baka. Allir hjá félaginu vilja að það ríki ró og samstaða í kringum hann. Það er búið að segja nóg,“ sagði Eberl.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.