Fotbolti.net
28.11.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Bellingham fékk rautt í tapi - Atletico vann

Spánn: Bellingham fékk rautt í tapi - Atletico vann
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid tapaði óvænt gegn Alaves í spænsku deildinni í kvöld. Toni Martinez kom Alaves yfir eftir vandræðagang í vörn Real Madrid.
Hann komst í boltann eftir slaka sendingu frá Dean Huijsen til baka og fór framhjá Thibaut Courtois. Hann átti skot sem Ibrahima Konate reyndi að koma í burtu en var of seinn og boltinn fór rétt yfir línuna.

Angel Perez bætti öðru marki Alaves við eftir laglega sendingu frá Mariano Diaz inn fyrir vörn Real Madrid.

Kylian Mbappe minnkaði muninn með skoti úr teignum eftir gott samspil milli Yan Diomande og Jude Bellingham sem lagði boltann á Mbappe.

Bellingham fékk gult spjald stuttu síðar og fékk annað gult spjald og þar með rautt fyrir dýfu inn í vítateig Alaves undir lok leiksins.

Atletico Madrid lagði Elche fyrr í kvöld og er með 34 stig í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Barcelona sem á leik til góða. Real Madrid er í 3. sæti með 33 stig.

Elche 2 - 3 Atletico Madrid
0-1 Alejandro Grimaldo ('5 , víti)
0-2 Lee Kang-In ('7 )
1-2 Martim Neto ('27 )
1-3 Julian Alvarez ('41 )
2-3 Buba Sangare ('48 )

Malaga 3 - 4 Athletic
0-1 Oihan Sancet ('27 )
0-2 Alejandro Berenguer ('34 )
1-2 Jens-Lys Cajuste ('36 )
1-3 Nico Williams ('38 )
1-4 Hugo Rincon ('44 )
2-4 Adrian Nino ('49 )
3-4 Adrian Nino ('82 )

Betis 0 - 1 Rayo Vallecano
0-1 Jorge De Frutos Sebastian ('72 )

Real Madrid 1 - 2 Alaves
0-1 Toni Martinez ('22 )
0-2 Angel Perez ('61 )
1-2 Kylian Mbappe ('69 )
Rautt spjald: Jude Bellingham, Real Madrid ('88)

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona13+3636
2Atletico Madrid14+1734
3Real Madrid14+2133
4Betis14+427
5Real Sociedad13022
6Racing Santander14-1020
7Athletic13+419
8Alaves14+119
9Sevilla13-219
10Villarreal13+115
11Espanyol13015
12Deportivo13-115
13Vallecano13-615
14Osasuna13-1015
15Celta13-113
16Levante14-712
17Valencia13-1112
18Getafe13-1312
19Elche14-711
20Malaga14-165
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.