Fotbolti.net
28.11.26 - 19:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Freysi kvaddi með tárin í augunum

Freysi kvaddi með tárin í augunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Freyr Alexandersson brast í grát þegar flautað var til leiksloka í leik Rosenborg og Molde í norsku deildinni í kvöld.

Rosenborg vann leikinn 2-1 og situr í 3. sæti með 50 stig. Liðið er með tveggja stiga forystu á Lilleström og sex stiga forystu á Molde en 3. og 4. sæti fá þátttökurétt í Sambandsdeildinni. Tvær umferðir eru eftir.
Sky: Swansea nálgast samkomulag um Frey
TENGT EFNI

Sky: Swansea nálgast samkomulag um Frey

Freyr hefur stýrt Rosenborg í síðasta sinn en hann staðfesti eftir leikinn að Rosenborg og Swansea hafi náð samkomulagi um að Freyr taki við enska liðinu.

„Ég elska Rosenborg svo mikið. Þess vegna er ég svona. Ég elska leikmennina og fólkið sem ég vinn með," sagði Freyr í viðtali við TV2.

Þá sagði Freyr að fráfall Ingvars Jónssonar hafi einnig haft áhrif en Ingvar var í íslenska landsliðshópnum þegar Freyr var aðstoðarlandsliðsþjálfari.

Samkvæmt heimildum norska miðilsins TV2 mun Swansea greiða Rosenborg 4-5 milljónir noskra króna til að fá Frey. Það samsvarar um 50-65 milljónum íslenskra króna.

Heimild: TV2

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.