Fotbolti.net
28.11.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sér eftir því að hafa haft áhrif á reglubreytingu

Sér eftir því að hafa haft áhrif á reglubreytingu
Canon

Mynd: EPA

Gary O'Neil, stjóri Ipswich, grínaðist með að það væri hans sök að sínir menn fengu ekki vítaspyrnu seint í 2-2 jafntefli gegn Aston Villa í kvöld.
Það var jafnt á 85. mínútu þegar fyrirgjöf Abdul Fatawu fór í fótinn á Ross Barkley og skoppaði upp á útréttan handlegg hans inni í teignum. Það er ekki refsivert þegar boltinn fer af líkamanum og í hendina.

„Það var líklega mér að kenna að við fengum ekki víti. Ég held að ég hafi fengið þessari reglu breytt þegar ég var hjá Wolves. Ég vældi í Howard Webb einn sunnudagsmorgun í símann eftir að Joao Gomez fékk á sig vítaspyrnu gegn Luton," sagði O'Neil.

„Ég sagði við hann, ef boltinn lendir á öðrum hluta leikmanns og svo í hendi hans þegar höndin er svona langt upp, þá getur það ekki verið refsing. Og svo held ég að reglunni hafi verið breytt nokkuð stuttu síðar. Þannig að það er líklega mín sök að við fengum ekki víti í kvöld!“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.