Fotbolti.net
29.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ashley Cole í viðræðum við Bristol Rovers

Ashley Cole í viðræðum við Bristol Rovers
Canon

Mynd: EPA

Ashley Cole gæti verið að fá sitt fyrsta starf sem aðalþjálfari á Englandi en The Guardian segir frá því að hann sé í viðræðum við Bristol Rovers sem spilar í ensku D-deildinni.

Hann stýrði Cesena í næst efstu deild á Ítalíu fyrr á þessu ári en hann var einnig aðstoðarþjálfari U21 landsliðs Englands. Þá hefur hann verið í þjálfarateymi Frank Lampard hjá Derby, Chelsea og Everton. Hann var einnig aðstoðarmaður Wayne Rooney hjá Birmingham.
Bristol Rovers tapaði 3-1 gegn Tranmere í gær og Steve Evans er undir mikilli pressu. Liðinu var spáð upp um deild en situr í 18. sæti fimm stigum fyrir ofan fallsæti.

Cole var á sínum tíma einn besti vinstri bakvörður heims. Hann á 107 landsleiki að baki fyrir hönd Englands og vann ensku úrvalsdeildina þrisvar, tvisvar með Arsenal og einu sinni með Chelsea, þá vann hann Meistaradeildina, Evrópudeildina, enska bikarinn sjö sinnum og deildabikarinn einu sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.