28.11.26 - 15:35
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd féll síðast þegar þetta gerðist

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester United er komið 2-0 undir gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni, en Squawka vekur athygli á því að tæp hundrað ár eru síðan United mistókst að halda hreinu í fyrstu tólf leikjum tímabilsins.
Callum Wilson kom Brentford yfir gegn United á Old Trafford og bætti síðan við öðru marki skömmu síðar.
Þetta þýðir að United hefur fengið á sig mark í öllum fyrstu tólf deildarleikjum tímabilsins, en það hefur ekki gerst síðan tímabilið 1930-1931.
Það tímabil endaði einmitt með því að United hafnaði í neðsta sæti og féll.
Staðan er vægast sagt dökk hjá United, sem situr í næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins átta stig og hefur ekki unnið deildarleik síðan í lok ágúst.

???? Manchester United have failed to keep a clean sheet in their first 12 games of a top-flight league season for the first time since 1930/31.
— United Zone (@ManUnitedZone) November 28, 2026
They finished bottom and were relegated that season.
[@Squawka]