Fotbolti.net
29.11.26 - 11:10
Brynjar Ingi Erluson

Leggur hanskana á hilluna

Leggur hanskana á hilluna
Canon

Mynd: EPA

Úrúgvæska goðsögnin Fernando Muslera hefur ákveðið að láta gott heita og leggja markmannshanskana á hilluna, en hann greindi frá ákvörðun sinni eftir úrslitaleik Copa Libertadores í gær.
Muslera, sem er fertugur, stóð á milli stanganna hjá argentínska liðinu Estudiantes sem tapaði 1-0 fyrir Palmeiras í úrslitaleik Copa Libertadores, Meistaradeildar Suður-Ameríku.

Úrúgvæinn á að baki stórkostlegan feril sem hófst hjá Montevideo Wanderers í heimalandinu áður en hann gekk til liðs við Lazio á Ítalíu árið 2007.

Þar lék hann í fjögur ár áður en hann hélt til Tyrklands og samdi við Galatasaray, þar sem hann átti eftir að festa sig rækilega í sessi og ná mögnuðum árangri á þeim fjórtán árum sem hann varði hjá félaginu.

Muslera vann alls nítján titla með Galatasaray, var fimm sinnum valinn í lið ársins og hlaut auk þess viðurkenningu sem besti leikmaður Tyrklands árið 2016.

Á síðasta ári kvaddi hann Galatasaray sem sannkölluð goðsögn og gekk til liðs við Estudiantes í Argentínu. Þar bætti hann þremur titlum í safnið og komst alla leið í úrslitaleik Copa Libertadores í ár.

Eftir vonbrigðin í úrslitaleiknum í gær tilkynnti hann hins vegar að komið væri að leiðarlokum og að markmannshanskarnir væru nú komnir upp á hillu.

Muslera átti einnig glæsilegan feril með landsliði Úrúgvæ, en hann lék 137 landsleiki og fór á fimm heimsmeistaramót. Hann var meðal annars stórkostlegur þegar Úrúgvæ komst alla leið í undanúrslit HM í Suður-Afríku árið 2010.

Árið eftir fagnaði hann sínum eina titli með landsliðinu þegar Úrúgvæ varð Suður-Ameríkumeistari.

Muslera kveður því fótboltann sem ein af goðsögnum úrúgvæsks fótbolta og þriðji leikjahæsti landsliðsmaðurinn í sögu þjóðarinnar.
Leggur hanskana á hilluna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.