Fotbolti.net
29.11.26 - 10:06
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea og Barcelona gætu skipst á leikmönnum - Gravenberch á förum?

Chelsea vill senda Estevao til Barcelona og fá Fermín í staðinn

Chelsea vill senda Estevao til Barcelona og fá Fermín í staðinn

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Powerade-slúðurpakki dagsins er mættur á þessum ágæta sunnudegi og það er af nógu að taka.
Xabi Alonso, stjóri Chelsea, vill gera skiptisamning við Barcelona þar sem brasilíski vængmaðurinn Estevao (19) færi til Spánar og spænski landsliðsmaðurinn Fermín Lopez (23) kæmi í staðinn til Lundúna. (El Nacional)

Aston Villa er tilbúið að rifta lánssamningi argentínska vængmannsins Alejandro Garnacho (22) og senda hann aftur til Chelsea. (Give Me Sport)

Arsenal hefur sett sig í samband við Ivan Fresneda (22), hægri bakvörð Sporting í Portúgal, en félagið lítur á hann sem mögulegan arftaka Ben White. (Athletic)

AC Milan er tilbúið að greiða 40 milljónir punda fyrir enska miðjumanninn Omari Hutchinson (23), sem hefur heillað hjá félaginu síðan hann kom á láni frá Nottingham Forest í sumar. (Gazzetta dello Sport)

Joe Willock (27), miðjumaður Newcastle, er á óskalista Besiktas, sem hyggst setja sig í samband við hann í næsta mánuði með það fyrir augum að fá hann til félagsins í janúarglugganum. (A Spor)

Fulham reynir að sannfæra Calvin Bassey (26) um að framlengja samning sinn við félagið, en enn ber mikið á milli í launaviðræðum. Manchester United er tilbúið að bjóða honum töluvert hærri laun en Fulham. (Teamtalk)

Juventus er sannfært um að félagið geti tryggt sér Nick Woltemade (24) frá Newcastle til frambúðar. (Football Insider)

Liverpool er talið líklegt til að selja Ryan Gravenberch (24), sem er ekki inni í myndinni hjá Andoni Iraola. Hollendingurinn er þó samningsbundinn félaginu til ársins 2032. (Football365)

Man Utd fylgist grannt með stöðu argentínska varnarmannsins Facundo Herrera (20), sem leikur með Boca Juniors í heimalandinu. (El Crack Deportivo)

AC Milan hefur ekki gefið upp vonina um að fá brasilíska sóknarmanninn Endrick (20) frá Real Madrid og er tilbúið að samþykkja endurkaupsákvæði í samningi hans. (Gazzetta dello Sport)

Barcelona hefur mikinn áhuga á Nico Paz (22), leikmanni Como og argentínska landsliðsins, en það gæti reynst erfitt að fá hann til félagsins þar sem Real Madrid hefur 70 milljóna punda kauprétt á honum á næsta ári. (El Nacional)
Ryan Gravenberch á förum frá Liverpool?

Ryan Gravenberch á förum frá Liverpool?

Canon

Mynd: EPA

Aston Villa er opið fyrir því að rifta lánssamningi Garnacho

Aston Villa er opið fyrir því að rifta lánssamningi Garnacho

Canon

Mynd: Aston Villa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.