Fotbolti.net
29.11.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Pochettino: Erfiðara en ég bjóst við

Pochettino: Erfiðara en ég bjóst við
Canon

Mynd: EPA

Man Utd er í næst neðsta sæti deildarinnar eftir 4-0 tap gegn Brentford í gær.

Liðið er án sigurs eftir fyrstu þrjá leikina undir stjórn Mauricio Pochettino en liðið tapaði einni gegn Liverpool 4-0 og gerði jafntefli gegn Sporting í Meistaradeildinni.
„Þetta er erfiður tími, kannski spyrðu mig 'erfiðara en þú áttir von á? Að sjálfsögðu, því við bjuggumst aldrei við svona úrslitum," sagði Pochettino.

„En þetta er staðan og við þurfum að horfast í augu við raunveruleikann. Við tökumst á við verkefnið og hér erum við. Við þurfum að halda áfram að leggja hart að okkur, lyfta leikmönnum upp því þeir eru að fara að spila á miðvikudaginn. Þeir þurfa að trúa aftur að við getum gert enn betur. Það er tímaspursmál."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.