28.11.26 - 18:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Freysi fagnaði sigri - Nálgast Swansea
Ágúst Orri lagði upp sigurmarkið

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Rosenborg fagnaði 2-1 sigri á Molde í norsku deildinni í kvöld. Freyr Alexandersson, þjálfari Rosenborg, hefur náð stórkostlegum árangri með liðið en það er útlit fyrir að hann sé á förum.
Freyr hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Swansea í Championship deildinni en Sky Sports greindi frá því í dag að Swansea væri nálægt því að ná samkomulagi við Rosenborg.

TENGT EFNI
Sky: Swansea nálgast samkomulag um Frey
Það eru aðeins tvær umferðir eftir af norsku deildinni og það er líklegt að þetta hafi verið síðasti leikur Freysa hjá félaginu. Rosenborg situr í 3. sæti deildarinnar með 50 stig, tveimur stigum á undan Lilleström sem á leik til góða og sex stigum á undan Molde.
3. og 4. sæti gefa þátttökurétt í Sambandsdeildinni. Swansea er í 11. sæti Championship deildarinnar en getur stokkið upp í 7. sæti með sigri á Cardiff á morgun.
Ágúst Orri Þorsteinsson lagði upp eina mark leiksins í sigri Excelsior gegn Telstar í hollensku deildinni. Hann komst upp að endalínu og sendi fyrir á Aymen Sliti sem skallaði boltann í netið.
Nökkvi Þeyr Þórisson var í byrjunarliði Telstar. Excelsior er í 10. sæti með 17 stig eftir 14 umferðir en Telstar er í 16. sæti með 10 stig.