Fotbolti.net
28.11.26 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fjórða jafnteflið í röð - „Svekktur og pirraður"

Fjórða jafnteflið í röð - „Svekktur og pirraður"
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa gerði 2-2 jafntefli gegn Ipswich í kvöld. Aston Villa komst tvisvar yfir í leiknum.

Unai Emery var svekktur og pirraður eftir leikinn en þetta var fjórða jafntefli Aston Villa í röð í deildinni.
„Við áttum skilið að vinna. Við spiluðum eins og við ætluðum, leikmennirnir fóru eftir planinu. Við vorum að horfa fram á við, eitthvað sem við gerðum ekki á móti Sunderland. Það er ljóst að úrslitin eru ekki nógu góð, við hefðum getað skorað fleiri mörk," sagði Emery.

„Ég er svekktur og pirraður en stoltur af leikmönnunum hvernig þeir eru að spila."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.