Fotbolti.net
30.01.14 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Þrír frá Liverpool

Suarez og Sturridge eru báðir í liðinu.

Suarez og Sturridge eru báðir í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar í enska boltanum en heil umferð var í miðri viku.

Ftbpro velur liðið að þessu sinni en í því eru þrír leikmenn frá Liverpool eftir 4-0 sigurinn á Everton.


Markvörður: Adrian, West Ham
Chelsea átti 38 marktilraunir gegn West Ham í gær en náði ekki að skora. Adrian átti sinn þátt í því.

Varnarmaður: Matthew Taylor
Eftir hafa legið undir gagnrýni undanfarnar vikur þá var Taylor öflugur í markalausu jafntefli West Ham og Chelesa.

Varnarmaður: Chico Flores, Swansea
Chico hjálpaði Swansea að halda hreinu gegn Fulham og skoraði sjálfur annað mark liðsins í 2-0 sigri.

Varnarmaður: Vincent Kompany, Manchester City
Kompany átti flottan leik í 5-1 sigri Manchester City á Tottenham í gær og komst meðal annars sjálfur á blað.

Varnarmaður: Davide Santon, Newcastle
Santon skilaði góðri frammistöðu í markalausu jafntefli Newcastle gegn Norwich.

Miðjumaður: Steven Gerrard, Liverpool
Gerrard var frábær á miðjunni í grannaslagnum gegn Everton. Fyrirliðinn gaf tóninn með því að skora fyrsta markið.

Miðjumaður: Adam Lallana, Southampton
Eftir smá öldula þá sýndi Lallana aftur hvað í honum býr gegn Arsenal.

Miðjumaður: Jason Puncheon
Stuðningsmenn Crystal Palace eru farnir að fyrirgefa Puncheon vítaspyrnuklúðrið mikla gegn Tottenham eftir sigurmark hans gegn Hull í fyrrakvöld.

Sóknarmaður: Daniel Sturridge, Liverpool
Tvö mörk í nágrannslagnum gegn Everton tryggja Sturridge sæti í liðinu.

Sóknarmaður: Luis Suarez, Liverpool
Suarez skoraði einnig gegn Everton og var líflegur allan leikinn.

Sóknarmaður: Edin Dzeko, Manchester City
Dzeko nýtti tækifærið í fjarveru Alvaro Negredo með því að skora eitt og leggja upp tvö gegn Tottenham.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Kompany er í vörninni.

Kompany er í vörninni.

Canon

Mynd: Getty Images

Adam Lallana er á miðjunni.

Adam Lallana er á miðjunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Puncheon er í liðinu.

Puncheon er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.