Fatih Terim, þjálfari Galatasaray og fyrrum landsliðsþjálfari Tyrklands, er útskrifaður af sjúkrahúsi.
Hann var þar í meðhöndlun eftir að hafa smitast af kórónaveirunni en eftir að hafa verið inni á sjúkrahúsinu í sjö daga mun hann nú klára að jafna sig heima hjá sér.
Hann verður áfram í einangrun því hann hefur ekki losnað algjörlega við veiruna.

Terim er 66 ára og er í guðatölu hjá tyrkneskum fótboltaáhugamönnum.
Athugasemdir