14.09.26 - 15:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óskar um markametið: Held að allir fótboltaáhugamenn elski það

Sögulega gott sóknarlið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn Þorvaldsson leggur mikið upp úr sóknarleik síns liðs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einu af 79 mörkum liðsins á tímabilinu fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sögulega gott sóknarlið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR sló í gær markamet í efstu deild þegar liðið skoraði fimm mörk gegn ÍA í 23. umferð Bestu deildarinnar. Liðið hefur skorað 79 mörk í 23 leikjum, tólf mörkum meira en Víkingur sem á leik til góða gegn Keflavík í kvöld. Ellefu mörkum þar á eftir er svo Fram með 56 mörk skoruð.
Fyrra metið áttu Víkingar sem skoruðu 76 mörk í 27 leikjum þegar þeir urðu Íslandsmeistarar árið 2023.

TENGT EFNI
Víðir Sig: Meira en bara markamet hjá KR
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður út í markametið í viðtali eftir leikinn.
„Það er mjög gaman, ég elska að sjá KR skora mörk. Ég veit að stuðningsmennirnir elska það og ég held að allir fótboltaáhugamenn elski það. Það skemmtilegasta í fótbolta er að skora mörk. Það er gaman að slá þetta met en þá er bara eitt metið farið og við þurfum því miður að byrja að fókusa á Víkinga á laugardag," sagði Óskar Hrafn við Elízu Gígju Ómarsdóttur, þjálfarinn ætlaði sér ekki að dvelja lengi við metið á þessum tímapunkti.
Þurfa virkilega að hafa fyrir því að henda frá sér titlinum
Hún spurði þjálfarann út í toppbaráttuna en fyrir leik Víkings og Keflavíkur skilja sex stig lið Víkings og KR að í deildinni.
„Sjáum hvernig Víkingur-Keflavík fer, þá gætum við haft alveg eins tilefni eða jafnvel meira (en síðast þegar liðin mættust). Leikirnir við Víking eru alltaf hörkuleikir, til þess að fá eitthvað út úr þeim leikjum þurfum við að vera á okkar allra allra besta degi. Við megum ekki gera mörg mistök því þeir refsa fyrir þau. Þeir eru feikilega öflugt lið, frábærlega mannað; með dýrasta og besta leikmannahóp á landinu. Við þurfum að vera upp á okkar besta í þeim leik."
Ef það færi svo að Víkingur myndi tapa í kvöld benti Óskar á að enn væri langt í toppliðið.
„Ennþá langt í okkur en kannski styttra í Framarana efir þriðjudaginn. En eins og staðan er núna þá er Víkingur í þeirri stöðu að þeir þurfa að kasta frá sér titlinum, það er eins og það er. Þegar þú ert með átta stiga forystu og fimm leikir eftir, þá þarftu virkilega að hafa fyrir því að henda frá þér titlinum," sagði Óskar í gær. Fram á líka eftir að spila í 23. umferðinni en liðið tekur á móti nýkrýndum bikarmeisturum Breiðabliks á morgun.

Óskar Hrafn: Við erum búnir að sakna Arnars mikið
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 22 | +46 | 53 |
| 2 | KR | 23 | +29 | 47 |
| 3 | Fram | 22 | +14 | 45 |
| 4 | Breiðablik | 22 | +2 | 30 |
| 5 | ÍA | 23 | -6 | 30 |
| 6 | Keflavík | 22 | -5 | 28 |