Fotbolti.net
30.03.21 - 08:30
Victor Pálsson

Segja að Werner vilji ekki yfirgefa Chelsea

Segja að Werner vilji ekki yfirgefa Chelsea
Canon

Mynd: Getty Images

Timo Werner, leikmaður Chelsea, hefur engan áhuga á því að yfirgefa félagið í sumarglugganum.
Þetta herma heimildir Goal.com en Werner hefur verið í töluverðu basli á sínu fyrsta tímabili á Stamford Bridge.

Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur skorað 10 mörk í 39 leikjum en hann kom frá Leipzig fyrir leiktíðina.

Chelsea borgaði 47,5 milljónir punda fyrir Werner sem hefur ekki staðist allar væntingarnar í London.

Það er þó vilji leikmannsins að sanna sig á Brúnni og mun hann ekki leitast eftir því að kveðja strax.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.