Fotbolti.net
30.04.13 - 14:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Þrír frá Liverpool

Hinn magnaði Christian Benteke.

Hinn magnaði Christian Benteke.

Canon

Mynd: Getty Images

Eftir að Manchester United gulltryggði Englandsmeistaratitilinn hefur fólk beint sjónum sínum að baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu og fallbaráttunni.

Hér að neðan má sjá úrvalslið umferðarinnar sem Garth Crooks, sérfræðingur BBC, setti saman. Eruð þið sammála vali hans?


Markvörður - Mark Schwarzer (Fulham)
Everton hefði getað skorað fimm mörk ef Schwarzer hefði ekki verið í svona miklu stuði.

Varnarmaður - Steven Reid (West Brom)
Þessi fyrrum leikmaður Blackburn hélt vörninni saman. West Brom hefur unnið 50% leikja sem Reid hefur spilað á tímabilinu en er með 38% sigurhlutfall án hans.

Varnarmaður - Daniel Agger (Liverpool)
Agger hefur ekki átt gott tímabil en hann var í sparifötunum gegn Newcastle. Þá skoraði hann þriðja deildarmark sitt á tímabilinu.

Varnarmaður - Laurent Koscielny (Arsenal)
Rio Ferdinand átti enn einn stórleikinn fyrir Manchester United en það dugir ekki til að komast í úrvalsliðið. Koscielny hélt Robin van Persie og Wayne Rooney í skefjum stærsta hluta leiksins.

Varnarmaður - Patrice Evra (Manchester United)
Á stóran þátt í velgengni United á tímabilinu. Svo er hann líka farinn að skila mörkum!

Miðjumaður - Yaya Toure (Manchester City)
Átti 99 sendingar ásamt því að skora mark. Fleiri sendingar en nokkur annar leikmaður í toppdeild átti um liðna helgi.

Miðjumaður - Philippe Coutinho (Liverpool)
Stærsta tap Newcastle á heimavelli síðan 1925 segir sitt. Brasilíumaðurinn tætti Newcastle í sundur.

Miðjumaður - Callum McManaman (Wigan)
Gleymum hrikalegu tæklingunni gegn Newcastle og förum að tala um hversu góður leikmaður McManaman er.

Sóknarmaður - Romelu Lukaku (West Brom)
Belginn hefur blómstrað síðan Chelsea lánaði hann til West Brom. Er hann nýr Didier Drogba?

Sóknarmaður - Daniel Sturridge (Liverpool)
Hefur skorað á St James\'Park fyrir Chelsea, Bolton og Liverpool. Hefur skorað sjö mörk og átt þrjár stoðsendingar í 11 úrvalsdeildarleikjum fyrir Liverpool.

Sóknarmaður - Christian Benteke (Aston Villa)
Þessi ungi leikmaður hefur sýnt stjörnuframmistöðu í vetur. Hann hefur skorað 18 mörk sem er það hæsta sem Aston Villa leikmaður hefur skorað á stöku tímabili í úrvalsdeildinni.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Daniel Agger.

Daniel Agger.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.