Fotbolti.net
30.08.18 - 21:48
Ingimar Helgi Finnsson

Vigfús Arnar: Tölfræðilega erum við ekki sloppnir

Auglýsing
Vigfús Arnar: Tölfræðilega erum við ekki sloppnir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vigfús Arnar Jósepsson þjálfari Leiknis var kampakátur eftir sigurleik í sannkölluðum sex stiga leik gegn Selfoss 1-2 en leikurinn var gífurlega mikilvægur í fallbaráttunni í Inkasso deildinni.

<i> „Ég er hrikalega ánægður og það var hrikalega sætt að skora sigurmarkið á lokamínútunni í virkilega erfiðum leik, veðrið hafði gríðarlega mikil áhrifa leikinn. Þetta er alveg ólýsanleg tilfinning, unaðslegt!\" </i>

Eftir sigurinn eru Leiknismenn nánast hólpnir en mikið þarf að ganga á til þess að Leiknir fari niður en Vigfús var ekki tilbúinn að fullyrða að Leiknismenn væru hólpnir.

<i> „Tölfræðilega erum við ekki sloppnir, þannig að við þurfum fleiri stig og við ætlum að halda áfram að safna stigum. Við eigum að spila við Þrótt í næsta leik og við höldum bara áfram. Við viljum bara klára þetta sem fyrst. Við unnum þá í fyrri umferðinni og þurfum bara að gera það aftur\" </i>

Maður leiksins í kvöld Sólon Breki er kominn aftur í lið Leiknis eftir meiðsli og skoraði sigurmarkið í kvöld. Hann gefur Leiknismönnum mikil gæði fram á við.

<i>„Já hann var hrikalega öflugur og hann gefur okkur mikla vigt fram á við og það eru fullt af mörkum í honum. Það er gífurlega gott að fá hann aftur heilan.\" </i>
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.