Mistök á heimasíðu Manchester City - Ætluðu að kaupa Koulibaly

Ruben Dias kom til Manchester City í gær.

Mynd: Man City

Ruben Dias kom til Manchester City í gær.

Mynd: Man City
Manchester City keypti í gær varnarmanninn Ruben Dias frá Benfica á 65 milljónir punda.
Manchester CIty hefur verið í leit að varnarmanni og Kalidou Koulibaly hjá Napoli var orðaður við félagið í allt sumar.
Þegar Dias var kynntur til sögunnar á heimasíðu Manchester City í gær gerði félagið mistök.

Þeir sem sjá um heimasíðuna hafa greinilega verið með tilbúið efni ef Koulibaly myndi koma. Þannig var sagt á heimasíðunni að stuðningsmenn gætu sent inn sína spurningu á nýja leikmanninn Koulibaly!
Hér að neðan má sjá skjáskot af heimasíðu Manchester City.
Hér að neðan má sjá skjáskot af heimasíðu Manchester City.

Mynd: Manchester City