Heimir spenntur að snúa aftur á Skagann - „Heillaðist mjög af þeirra hugmyndum"


Mynd: ÍA


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sex sinnum gert lið að Íslandsmeisturum sem aðalþjálfari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tekur við góðu búi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA endaði í 4. sæti á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skagamenn ætla leggja gervigras á aðalvöllinn næsta vor.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var í eitt ár hjá Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: ÍA
Heimir er mjög sigursæll þjálfari, enginn hefur unnið fleiri Íslandsmeistaratitla en hann og hann vann einnig tvo titla í Færeyjum. Hann tekur við starfinu eftir að hafa stýrt Fylki á síðasta tímabili. Fótbolti.net ræddi við Heimi í gærkvöldi.
Heillaðist mjög af þeirra hugmyndum
Hvernig var aðdragandinn?
„Þeir spjölluðu við mig fyrir nokkrum vikum síðan, ég fór á fund með þeim sem var mjög fagmannlegur, þeir sýndu hvernig þeir vilja gera hlutina og hvert þeir vilja stefna. Ég verð að viðurkenna það að ég heillaðist mjög af þeirra hugmyndum. Svo tókum við þetta bara áfram í framhaldinu."
Frábært að vera á Skaganum
Minningarnar af Skaganum, eru þær góðar?
„Já, mjög. Það var frábært að vera á Skaganum og spila þar. Ég kynntist mörgu frábæru fólki sem ég tala ennþá við í dag. Það voru fín tvö ár. Það er gott að þekkja aðeins til og vita aðeins út í hvað maður er að fara."
Hefur átt mjög góðu gengi að fagna gegn ÍA
Þegar horft er í þjálfaraferil Heimis til þessa og hans gengi gegn öðrum liðum sést á Transfermarkt að ÍA er það lið sem honum hefur gengið best á móti af þeim liðum sem hann hefur mætt oftar en tíu sinnum á ferlinum. Í 23 leikjum hefur Heimir 19 sinnum unnið gegn ÍA, gert eitt jafntefli og þrisvar tapað. Það gera 2,52 stig að meðaltali í leik. Eftirminnilegur er leikurinn 2025 þar sem FH var 0-2 undir á heimavelli, Heimir kveikti í sínu liði með því að fá rautt spjald og FH vann í kjölfarið leikinn.
Ósköp eðlilegt að það séu kröfur á Skaganum
Skaginn fer í þjálfarabreytingu, það eru væntingar og kröfur hjá stjórn. Utan frá virðist stefnan vera sett á Evrópubaráttu á næsta ári, þú ert væntanlega klár í það?
„Já, alls staðar sem ég hef verið hafa alltaf verið kröfur. Það er ósköp eðlilegt að það séu kröfur á Skaganum. Ég er bara nýtekinn við þessu og það er ágætt að fara varlega í yfirlýsingar. Við byrjum formlega að æfa 1. desember, þá skoðum við hópinn og sjáum hvað þarf að bæta við. Í framhaldinu getum við farið að hugsa um næsta leik," segir Heimir yfirvegaður.
Reiknar ekki með miklum breytingum á þjálfarateyminu
Verða miklar breytingar á teyminu?
„Nei, það verða ekki miklar breytingar á teyminu. Þetta gerðist bara í dag, við eigum eftir að setjast niður og skoða þetta en ég reikna ekki með miklum breytingum."
Vill vera á meðal þeirra bestu
Ertu ánægður að vera kominn aftur í þá Bestu?
„Já, auðvitað viltu sem mikill keppnismaður vera á meðal þeirra bestu og ég er mjög sáttur að vera kominn þangað aftur. Ég tek við góðu búi, er með gott lið, sem er jákvætt."
Auðvitað einhverjar breytingar
Hvað með mannskap, sérðu fyrir þér miklar breytingar þar?
„Nei, ég sé það ekki fyrir mér. Það er góður kjarni í ÍA, mikið af ungum og efnilegum leikmönnum að koma upp. Þegar nýr þjálfari kemur inn þá verða auðvitað einhverjar breytingar, ef ég lít snöggt yfir þetta núna þá held ég við þurfum að styrkja liðið fyrir næsta tímabil, en grunnurinn er góður."
Flott skref hjá ÍA að fara á gervigras
Það er ljóst að Skagamenn ætla að fara á gervigras, hvernig líst þér á þá framtíð?
„Ég held að það sé engin spurning, deildin er orðin þannig og við höfum séð það t.d. með síðustu umferðina í Bestu deildinni núna um síðustu helgi. ÍA og FH áttu að spila á grasi en það er ekki mögulegt þegar þú ert kominn í lok október. Ég held það sé flott skref hjá ÍA að fara á gervigras."
Verður það áskorun að stýra liði sem verður ekki kominn með sinn heimavöll fyrr en vel er liðið á mótið?
„Eðlilega verður það áskorun. En við munum sjá til hvernig þetta verður og hvort við þurfum að fara á annan völl. Það er seinni tíma vandamál."
Heldur spilunum þétt að sér
Þú gerir þriggja ára samning, hvað er það sem þig langar að gera á þeim tíma?
„Ég ætla að byrja á því að vinna með leikmönnum, skoða hópinn, sjá hvar veikleikarnir eru og hvar sé hægt að styrkja liðið. Svo þegar það er komið, þá get ég gefið einhverja betri mynd af hlutunum."


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sex sinnum gert lið að Íslandsmeisturum sem aðalþjálfari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tekur við góðu búi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA endaði í 4. sæti á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skagamenn ætla leggja gervigras á aðalvöllinn næsta vor.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var í eitt ár hjá Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
