Fotbolti.net
30.10.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ásgeir Frank ráðinn þjálfari Ýmis og 2. flokks HK

Ásgeir Frank ráðinn þjálfari Ýmis og 2. flokks HK
Canon

Mynd: HK

Ásgeir Frank Ásgeirsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. flokks HK og tekur einnig við þjálfun hjá Ými. Hann skrifar undir tveggja ára samning.

Ýmir endaði í níunda sæti 3. deildar karla í sumar.

Ásgeir Frank var síðast aðstoðarþjálfari Fjölnis og þar áður í teymi Aftureldingar og þjálfari Hvíta riddarans.
Ásgeir er fæddur árið 1996 en á leikmannaferlinum ólst hann upp hjá Víkingi og spilaði einnig með Kórdrengjum, Aftureldingu og Hvíta riddaranum.

„Ásgeir skrifar undir tveggja ára samning við félagið og bindur félagið miklar vonir við hann að halda áfram góðu starfi í HK og hjálpa yngri leikmönnum HK að þróa leik sinn áfram, segir í tilkynningu frá HK.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.