30.10.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Donni stýrir Tindastóli í 2. deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Jón Sigurðsson, betur þekktur sem Donni, er mættur aftur í Tindastól og hefur verið ráðinn þjálfari liðsins. Hann skrifar undir þriggja ára samning.
Tindastóll endaði í neðsta sæti Lengjudeildar kvenna og spilar í 2. deild á næsta ári.
Hann þekkir vel til á svæðinu en hann þjálfaði kvennaliðið frá 2022-2025 og starfaði einnig hjá karlaliðinu sem aðal og aðstoðarþjálfari. Donni hætti sem landsliðsþjálfari U19 í sumar þar sem það var erfitt að búa á Sauðárkróki og vinna það starf.

„Með ráðningu Donna horfum við björtum augum til næstu ára og erum við mjög ánægð með að hafa náð samkomulagi við hann um þriggja ára samning. Við teljum að reynsla hans, þekking á félaginu og metnaður muni nýtast liðinu og félaginu vel." Segir í tilkynningu frá Tindastóli.