Fotbolti.net
30.10.26 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Svo stoltur af honum að orð geta varla lýst því"

Markinu gegn KR fagnað.

Markinu gegn KR fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aron Birkir Stefánsson var að margra mati besti leikmaður Þórs á tímabilinu. Fyrirliðinn fór fyrir sínu liði, stóð vaktina virkilega vel á milli stanganna og bætti svo við með því að skora glæsilegt mark gegn KR.

Aron hefur sjálfur sagt frá því að tímabilið 2024 hafi verið lélegt hjá sér, en hann var svo valinn í lið ársins í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.

Í ár steig hann annað skref og var á meðal bestu markmanna deildarinnar. Undirritaður stóð sig sjálfur af því fyrir mót að segja að ef Aron Birkir væri ekki Þórsari og væri ekki í Þór þá væri félagið að leita að öðrum kosti.
„Ég er svo stoltur af honum að orð geta varla lýst því. Það er ekkert langt síðan við hugsuðum, og ég þar á meðal, að við yrðum að fá annan markmann í liðið. Ég settist niður með Aroni eftir tímabilið 2024. Þá var hann líka að velta fyrir sér varðandi fyrirliðastöðuna, hver væri lykillinn að góðum fyrirliða. Ég sagði við hann að til þess að fá virðingu leikmanna þá verður hann að leiða með fordæmi og það snýr að öllu; hegðun á æfingasvæðinu, hvernig þú hugsar um þig, mataræði og svefn. Samherjar, og sérstaklega ungu strákarnir, horfa rosalega í þetta."

„Aron er algjörlega búinn að finna það að hann hefur þessa virðingu og þegar þú hefur hana, þá stækkar það þig. Hann er búinn að stækka rosalega sjálfur sem persóna og ég held að það hafi hjálpað honum á vellinum."

„Það var mikið talað um hann fyrir mótið og fyrsta markið sem hann fær á sig var gegn Val þar sem hann missir boltann frá sér. Það var strax farið að hafa samband við okkur hvort við vildum fá markmann. Við sögðum bara ekki séns, hann væri okkar maður. Þótt það megi líta á mark Vals í fyrstu umferð sem mistök, þá leið okkur ekki á neinum tímapunkti illa með að hann yrði markmaður okkar á tímabilinu."

„Að mínu mati er hann einn albesti markmaðurinn í deildinni eftir þetta sumar,"
segir Sveinn Elías Jónsson sem er formaður fótboltadeildar Þórs.

Samherji Arons var spurður út í hann í viðtali eftir sigurinn gegn FH í lokaumferðinni.

„Frábær leiðtogi, frábær markmaður og frábær manneskja. Þetta var geðveik varsla og hún hélt okkur í leiknum, hefðum lent þarna 2-0 undir," sagði Kristófer Kristjánsson þegar hann var spurður út í lykilvörslu Arons í leiknum. Aron varði þá skot frá Jóhannesi Kristni Bjarnasyni í stöngina og kom í veg fyrir að FH-ingar kæmust tveimur mörkum yfir snemma leiks. Þór sneri svo taflinu við og vann 1-2 sigur.

Aron Birkir ræddi við Akureyri.net eftir lokaleikinn. Hann er samningslaus eftir tímabilið.

„Minn samningur rennur út núna um áramótin en ég er ekkert farinn að hugsa um það. Ég býst við því að vera hérna áfram, vona það alla vega. Spurning hvað Svenni segir!" sagði fyrirliðinn.
Enginn markvörður hélt oftar hreinu (6) í deildinni og Aron varði að meðaltali flest skot í hverjum leik.

Enginn markvörður hélt oftar hreinu (6) í deildinni og Aron varði að meðaltali flest skot í hverjum leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur stigið vel upp eftir lélegt tímabil 2024.

Hefur stigið vel upp eftir lélegt tímabil 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.