30.10.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kristófer Áki semur í Ólafsvík - Sinnir einnig styrktarþjálfun
Tveir aðrir lykilmenn búnir að framlengja

Kristófer Áki Hlinason

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Kristófer Áki Hlinason

Mynd: Víkingur Ólafsvík
Kristófer Áki Hlinason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Víking Ólafsvík. Hann kom við sögu í 17 leikjum í deild og bikar í sumar.
Hann skrifaði þá einnig undir samning við félagið um að gerast styrktarþjálfari fyrir 5. flokk og eldri.
Hann skrifaði þá einnig undir samning við félagið um að gerast styrktarþjálfari fyrir 5. flokk og eldri.
Björn Henry Kristjánsson skrifaði einnig undir nýjan tveggja ára samning en hann kom við sögu í 25 leikjum í sumar og skoraði eitt mark.
Þá skrifaði fyrirliðinn Ingvar Freyr Þorsteinsson undir tveggja ára samning. Hann spilaði 22 leiki í deildinni í sumar og skoraði fimm mörk. Víkingur Ó. hafnaði í 5. sæti í 2. deild.
Þá skrifaði fyrirliðinn Ingvar Freyr Þorsteinsson undir tveggja ára samning. Hann spilaði 22 leiki í deildinni í sumar og skoraði fimm mörk. Víkingur Ó. hafnaði í 5. sæti í 2. deild.
