30.10.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óliver Andri gerir tveggja ára samning við ÍR

Mynd: ÍR

Mynd: ÍR

Óliver Andri Einarsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍR sem gildir út árið 2028.
Óliver er miðjumaður fæddur árið 2004. Hann ólst upp í Keflavík en hann gekk til liðs við ÍR frá uppeldisfélaginu í fyrra. Hann hefur einnig spilað með Reyni Sandgerði á ferlinum.

Hann kom við sögu í 19 leikjum og skoraði fimm mörk þegar ÍR hafnaði í 7. sæti Lengjudeildarinnar síðasta sumar.
„Knattspyrnudeildin fagnar því að sjá Óliver halda tryggð við félagið. Á sama tíma og við óskum Óliver til hamingju með samninginn óskum við honum góðs gengis," segir í tilkynningu frá ÍR.