30.10.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Israel Garcia yfirgefur Fram (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Israel Garcia hefur yfirgefið Fram eftir að samningur hans við félagið rann út.
Garcia gekk til liðs við Fram í fyrra og spilaði 24 leiki og skoraði eitt mark í Bestu deildinni. Hann kom við sögu í 21 leik í sumar þegar liðið hafnaði í 3. sæti og tryggði sér sæti í Evrópukeppni.
Garcia gekk til liðs við Fram í fyrra og spilaði 24 leiki og skoraði eitt mark í Bestu deildinni. Hann kom við sögu í 21 leik í sumar þegar liðið hafnaði í 3. sæti og tryggði sér sæti í Evrópukeppni.
„Við höfum deilt mörkum ótrúlegum augnablikum saman og við enduðum þetta ferðalag með því að komast í forkeppni Sambandsdeildarinnar, eitthvað sem Fram hefur beðið eftir í rúman áratök. Ég er svo gríðarlega stoltur af því sem við áorkuðum saman," skrifar Garcia í færslu á Instagram.
Það er óvíst hvað tekur við hjá Garcia en hann hefur verið orðaður við Njarðvík, Vestra og Þór.
Það er óvíst hvað tekur við hjá Garcia en hann hefur verið orðaður við Njarðvík, Vestra og Þór.
