30.10.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Náði ekki markmiðinu hjá Fylki en náði að kveikja í Árbænum

Komst í úrslitaleik en náði ekki að vinna hann.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Myndaðist góð stemning með ráðningunni á Heimi.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Ég hef ekkert nema gott um Fylki að segja

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég held að á endanum séu báðir aðilar sáttir við þessa niðurstöðu

Heimir Guðjónsson tók við Fylki fyrir um ári síðan og stýrði liðinu í 3. sæti Lengjudeildarinnar. Í kjölfarið tók við umspil þar sem liðið sló út HK í undanúrslitum en tapaði svo fyrir Þrótti á Laugardalsvelli í úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni. Árið á undan hafði gengið illa hjá Fylki sem náði að halda sér uppi á lokakafla Lengjudeildarinnar 2025.
Heimir var í gær tilkynntur sem nýr þjálfari ÍA, sem kaupir hann af Fylki, og hefur þjálfarinn því yfirgefið skútuna í Árbænum. Hann ræddi í gærkvöldi við Fótbolta.net um tímann í Fylki.

TENGT EFNI
Heimir spenntur að snúa aftur á Skagann - „Heillaðist mjög af þeirra hugmyndum"
Ekkert nema gott um Fylki að segja
Er erfitt að fara frá Fylki?
„Já, algjörlega. Fylkir er mjög flottur klúbbur, mér leið mjög vel í Fylki og það var virkilega erfitt að yfirgefa Fylki. Ég vann með frábærum mönnum. Það voru auðvitað vonbrigði í endann, komnir í úrslitaleik að ná því ekki yfir línuna, en Þróttararnir voru bara betri en við á þessum degi. Ég hef ekkert nema gott um Fylki að segja."
Báðir aðilar sáttir við niðurstöðuna
Var eitthvað erfitt eða furðulegt síðustu daga og vikur varðandi hvort þú yrðir áfram þar eða færir annað?
„Nei, alls ekki. Svona er bara fótboltinn í dag. Það var ekkert óeðlilegt. Ég held að á endanum séu báðir aðilar sáttir við þessa niðurstöðu."
Náði ekki markmiðinu en náðist að kveikja í Árbænum
Þegar Heimir tók við sagði hann að það væri ekki krafa að fara upp með liðið á fyrsta tímabili. En líður þér eins og þú hafir ekki náð markmiðinu þínu með Fylki?
„Já, ég verð að viðurkenna að mér líður pínulítið þannig. Það er í eðli keppnismannsins að þegar þú ert kominn svona nálægt þessu, þá viltu fara yfir línuna og auðvitað eru það ákveðin vonbrigði. Á móti kemur þá náðum við að kveikja svolítið í Árbænum, eins og ég sagði í allt sumar þá var stuðningurinn við liðið frábær og það er eitthvað sem Fylkir getur byggt á."
Ósanngjarnt að tala um önnur lið
Þú varst sterklega orðaður við annað starf, þjálfarastöðuna hjá Stjörnunni. Talaðir þú eitthvað við Stjörnuna?
„Ég held að það sé ósanngjarnt gagnvart ÍA, held það sé ekki rétt af mér að tala um einhver önnur lið. Ég er mjög sáttur við þessa niðurstöðu og ÍA er það líka. Þá er næsta skref að fara vinna saman og halda áfram," segir Heimir að lokum.