Fotbolti.net
31.01.13 - 15:40
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Berbatov og Rooney saman á ný

Lið vikunnar í enska - Berbatov og Rooney saman á ný
Canon

Mynd: Getty Images

Wayne Rooney er í fremstu víglínu í liði vikunnar í ensku úrvalsdeildinni en það er Goal.com sem setti saman liðið að þessu sinni. Rooney skoraði tvívegis í naumum sigri Manchester United gegn Southampton.

Olivier Giroud og Theo Walcott voru báðir óheppnir að fá ekki sæti í liðinu. Samkeppnin hörð.


Markvörður: Julio Cesar (QPR)
Fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í markalausu jafntefli gegn Manchester City. Varði tvívegis í heimsklassa.

Varnarmaður; Chico (Swansea)
Flottur leikmaður og sýndi það greinilega í leiknum gegn Sunderland.

Varnarmaður: Ryan Nelsen (QPR)
Harry Redknapp og lærisveinar göldruðu fram frábæran varnarleik. Nelsen lék kveðjuleik sinn fyrir QPR og var þrusuflottur.

Varnarmaður: Leighton Baines (Everton)
Enn og aftur í liði vikunnar. Skoraði bæði í 2-1 sigri gegn West Brom og gerði allt tryllt í Everton-horninu á Ölveri.

Miðjumaður: Robert Snodgrass (Norwich)
Stjarna Norwich í 1-1 jafnteflisleiknum gegn Tottenham.

Miðjumaður: Moussa Sissoko (Newcastle)
Byrjar vel í ensku úrvalsdeildinni en Newcastle vann Aston Villa.

Miðjumaður: James McArthur (Wigan)
Besti maður Wigan gegn Stoke.

Miðjumaður: Gareth Bale (Tottenham)
Magnað mark hans gefur honum sæti í úrvalsliðinu.
Sóknarmaður: Wayne Rooney (Man Utd)
Sá til þess að United landaði þremur stigum gegn vel spilandi liði Southampton.

Sóknarmaður: Dimitar Berbatov (Fulham)
Magnaður í 3-1 sigri Fulham gegn West Ham.

Sóknarmaður: Adam Le Fondre (Reading)
Kom af bekknum og skoraði tvö, sá til þess að Reading náði 2-2 jafntefli gegn Chelsea

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.