Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull: Við áttum inni í xG-inu að setja eitthvað inn í markið
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Snerti hann og kontra svo í Samúel"
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
   sun 31. maí 2026 20:19
Haraldur Örn Haraldsson
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var bara mjög skemmtilegur leikur, mjög skemmtilegt fyrir hlutlausa," sagði Hilmar Árni Halldórsson aðstoðarþjálfari KR eftir 5-3 sigur gegn KA í dag.


„Ég er eiginleg smá orðlaus yfir því hvernig við hleyptum þessu upp í svona jafnan leik. Mér fannst við vera með mikil tök á þessum leik og orkustigið í liðinu okkar frábært. Frábær fyrri hálfleikur og í raun gerum við margt ótrúlega vel í öllum leiknum, en þetta er ein af ástæðunum fyrir því að við elskum þessa íþrótt. Þetta eru einhver nokkur augnablik sem þeir eiga og þeir fá 'momentum' og gera þetta bara af alvöru leik. Sem er eitthvað sem við þurfum að skora hvernig við getum drepið svona leiki, því yfirburðirnir voru miklir að mér fannst. Kredit á þá, þeir börðust og komust inn í þennan leik og á endanum var mjög ljúft að sjá Galdur klára þennan leik," sagði Hilmar.

Finnur Tómas gerðist á 63. mínútu sem leiddi að fyrsta marki KA. KR-ingar voru hins vegar sannfærðir um að þetta hefði ekki átt að vera brot.

„Mér sýndist það 'live' og mér sýndist það líka á upptökunni að það var klárt að hann tók boltann. Það er bara eins og það er, við hefðum bara átt að verjast þessu betur og við hleyptum þeim og gáfum þeim smá trú. Sem var algjör óþarfi því orkan í leiknum sjálfum var eins og það væri engin leið fyrir þá inn í leikinn. En þeir fundu smá trú þarna," sagði Hilmar.

KA menn minnkuðu muninn í 4-3 á einu augabragði og gerðu leikinn frekar óþægilegan fyrir KR sem hann hafði ekki verið áður.

„Það eru þarna smáatriði sem klikka í varnarleiknum og það er eitthvað sem við þurfum að skoða. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skiptið í sumar þar sem það þarf oft lítið til að meiða okkur. En það er líka hlut af hugmyndafræðinni að við setjum mikið púður í sóknarleikinn, skorum fimm í dag en það þarf að vera eitthvað jafnvægi. Við fundum hann kannski ekki alveg nægilega vel í dag, ég segi ekki 'panic' en auðvitað fer alltaf smá um mann. Ég held að allur völlurinn hafi fundið að allt í einu gæti þetta orðið leikur. Virkilega fagmannlega, og vel gert hjá okkur að við gátum haldið áfram að stíga á bensíngjöfina og náð þessu fimmta marki," sagði Hilmar.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner