Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mán 21. september 2015 15:00
Magnús Már Einarsson
Van Persie: Er ekki mjög ánægður
Robin van Persie.
Robin van Persie.
Mynd: Getty Images
Tyrklands ævintýri Robin van Persie byrjar ekki eins og hollenski framherjinn hafði áætlað.

Eftir að hafa skorað í fyrsta leik þá heur lítið gengið upp að undanförnu og Van Persie var hent á bekkinn í 2-1 sigri á Bursaspor í gær.

„Í hreinskilni sagt þá er ég ekki mjög ánægður í augnablikinu," sagði hinn 32 ára gamli Van Persie eftir leik.

„Ég er ekki ánægður með að byrja á bekknum. Ég er í mjög fínu formi og klár í að spila 90 mínútur.

„Eina rétta svarið er að gera eins og ég gerði og hjálpa liðinu að vinna."

Athugasemdir
banner