Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   mið 11. maí 2016 13:00
Elvar Geir Magnússon
Lið 1. umferðar Inkasso: Þrír frá KA
Archange Nkumu var valinn maður leiksins þegar KA vann Fram.
Archange Nkumu var valinn maður leiksins þegar KA vann Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Jóhannes Karl Guðjónsson er í liðinu.
Jóhannes Karl Guðjónsson er í liðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net fjallar best allra fjölmiðla um Inkasso-deildina, 1. deild karla, en fyrsta umferðin var leikin á föstudag og laugardag.

KA, sem spáð var efsta sæti, vann 3-0 sigur á Fram og á þrjá leikmenn í úrvalsliðinu; þar á meðal er Guðmann Þórisson sem gekk óvænt í raðir Akureyrarliðsins frá FH nýlega.

Keflavík sem spáð var öðru sæti á einn fulltrúa eftir jafntefli gegn HK. Leiknir var spáð þriðja sæti og vann öruggan sigur á Þórsurum sem spáð var fjórða. Leiknismenn eiga tvo leikmenn í úrvalsliðinu.

Við erum með þá nýbreytni að velja einnig þjálfara umferðarinnar en það er þjálfari Hugins sem hlýtur þá nafnbót í fyrstu umferð. Seyðisfjarðarliðið er nýliði í deildinni en vann granna sína í Fjarðabyggð.



Úrvalslið 1. umferðar Inkasso:
Srdjan Rajkovic - KA

Halldór Kristinn Halldórsson - Leiknir R.
Guðmann Þórisson - KA
Jóhannes Karl Guðjónsson - HK
Jósef Kristinn Jósefsson - Grindavík

Rodrigo Gomes Mateo - Grindavík
Archange Nkumu - KA
Einar Orri Einarsson - Keflavík
Pachu Martinez - Selfoss

Elvar Páll Sigurðsson - Leiknir R.
Stefán Ómar Magnússon - Huginn

Þjálfari umferðarinnar: Brynjar Skúlason, Huginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner